Ákvörðun peningastefnunefndar Seðlabankans hefur borið árangur í baráttu við aukna verðbólgu. Að sama skapi þarf Seðlabankinn þó að huga vel að því að lækka vexti aftur samhliða því sem verðbólgan lækkar
![Ríkisfjármál Sigurður Ingi Jóhannsson er fjármála- og efnahagsráðherra.](/myndir/gagnasafn/2024/07/16/88f0106f-fdea-443d-b272-c99e2e94867c.jpg)
Ríkisfjármál Sigurður Ingi Jóhannsson er fjármála- og efnahagsráðherra.
— Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Gísli Freyr Valdórsson
gislifreyr@mbl.is
Ákvörðun peningastefnunefndar Seðlabankans hefur borið árangur í baráttu við aukna verðbólgu. Að sama skapi þarf Seðlabankinn þó að huga vel að því að lækka vexti aftur samhliða því sem verðbólgan lækkar.
Þetta kemur fram í árlegri skýrslu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) um íslenskt efnahagslíf, sem birt var síðdegis í gær. Sjóðurinn gerir reglubundnar úttektir á efnahagslífi aðildarlanda sinna en sendinefnd frá sjóðnum var hér á landi í maí síðastliðnum til viðræðna við íslensk stjórnvöld og aðra hagaðila.
Telja að verðbólgumarkmið náist í byrjun árs 2026
Í skýrslu AGS kemur fram að búast megi við kólnun í hagkerfinu á þessu ári en að samhliða því standi vonir til þess að verðbólga lækki undir lok árs
...