Tónlistarkonan Una Torfa er á ferðalagi um landið og heldur tónleika á ýmsum stöðum nú í vikunni. Hún kemur fram í Bragganum á Hólmavík í kvöld, 16. júlí, kl. 21, á Vagninum á Flateyri annað kvöld, 17. júlí, kl. 21, í Sauðárkrókskirkju þann 19. júlí kl. 21 og á Gamla Bauk á Húsavík 21. júlí kl. 22. Una gaf nýverið út sína fyrstu breiðskífu, Sundurlaus samtöl. Á túrnum ferðast Una um með gítarleikaranum Hafsteini Þráinssyni og flytja þau plötuna í einföldum og fallegum búningi, eins og segir í kynningartexta.