Hetjan Markvörðurinn Ísak Steinsson var hetja íslenska liðsins.
Hetjan Markvörðurinn Ísak Steinsson var hetja íslenska liðsins. — Ljósmynd/EHF

Ísak Steinsson tryggði íslenska U20 ára landsliðinu jafntefli gegn Portúgal, 33:33, í fyrsta leik liðanna í úrslitakeppni átta liða úrslita Evrópumótsins í Slóveníu í gær. Ísak varði víti eftir að leiktíminn rann út og tryggði íslenska liðinu í leiðinni stig sem gæti reynst dýrmætt. Elmar Erlingsson var markahæstur íslensku strákanna með sjö mörk en Össur Haraldsson og Reynir Þór Stefánsson skoruðu fjögur mörk hvor. Ísak varði 10 skot í markinu.