![Donald Trump, með sárabindi á eyranu, er hylltur af gestum á aðalfundi Repúblikanaflokksins fyrr í vikunni. Varaforsetaefni Trumps, J. D. Vance, er til hægri á myndinni en á bak við Trump standa tveir elstu synir hans.](/myndir/gagnasafn/2024/07/17/cbfd17c6-44ae-4328-be6c-418794784e17.jpg)
Það þarf ekki að vakta umræðuna á samfélagsmiðlum lengi til að sjá að það er mikill munur á því hvaða augum vinstri- og hægrimenn líta hvorir aðra.
Hjá hægrinu finnst mér ég greina það viðhorf að vinstrimenn séu vel meinandi en ekki nógu vel að sér; að þá skorti þekkingu á hagfræði og sagnfræði og skilji þess vegna ekki langtímaafleiðingar eigin stefnumála og átti sig ekki á rót þeirra vandamála sem þeir þykjast geta leyst.
Mig grunar að þetta viðhorf litist af því að flestir hægrimenn voru vinstramegin í stjórnmálum á sínum yngri árum en skiptu um lið þegar þeim óx vit og þroski.
Hjá vinstrinu er hins vegar útbreitt að einfaldlega sé litið á hægrimenn sem grimm og gráðug illmenni – nánast eins og þeir væru vondi karlinn í Disneymynd. Einnig finnst mér sláandi hve oft vinstrimenn
...