Fimmtudagskvöldið 18. júlí leiðir Guðni Ágústsson árlega göngu sína á Þingvöllum. Gangan hefst við upplýsingamiðstöðina á Hakinu kl. 20. Gengið verður um Lögberg og gert er ráð fyrir að göngunni ljúki við Þingvallakirkju kl
![Lýðveldið Núverandi og fyrrverandi ráðherrar skipta með sér verkum.](/myndir/gagnasafn/2024/07/17/236e8d72-1056-4aaa-82d9-ef231c94c096.jpg)
Lýðveldið Núverandi og fyrrverandi ráðherrar skipta með sér verkum.
— Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Óskar Bergsson
oskar@mbl.is
Fimmtudagskvöldið 18. júlí leiðir Guðni Ágústsson árlega göngu sína á Þingvöllum. Gangan hefst við upplýsingamiðstöðina á Hakinu kl. 20. Gengið verður um Lögberg og gert er ráð fyrir að göngunni ljúki við Þingvallakirkju kl. 22.
Viðburðarík saga staðarins
Guðni segir frá stofnun Alþingis á Þingvöllum árið 930 og því hvernig þinghaldinu og þingmannabúðunum var komið fyrir í Almannagjá.
Guðni fer líka yfir það hvernig árfarveginum var breytt og fossinn myndaður. Hann mun svo rekja blóma- og
...