![Heiðrún Jónsdóttir, framkvæmdastjóri SFF, er gestur Dagamála í dag.](/myndir/gagnasafn/2024/07/17/8cd6c31e-f5e0-4044-ad6c-971c70ec4f62.jpg)
Rúmlega helmingur af þeim reglum sem settar eru um íslenskan fjármálamarkað er gullhúðaður með einum eða öðrum hætti.
Þetta segir Heiðrún Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í fjármálaþjónustu (SFF), í nýjum þætti Dagmála sem sýndur er á mbl.is í dag.
Í þættinum fjallar Heiðrún meðal annars um regluverkið, sem hún segir að verði sífellt flóknara og erfiðara að fylgja eftir. Það eigi þó ekki bara við hér á landi, heldur hafi evrópsku bankasamtökin nú í okkur ár gagnrýnt það mikla regluverk sem búið er og verið er að setja um fjármálamarkaði.
Heiðrún vekur þó athygli á fyrrnefndri gullhúðun. Það er hugtak sem notað er þegar íslensk stjórnvöld setja, við innleiðingu á evrópsku regluverki í lög hér landi, sérstakar og sér-íslenskar reglur samhliða og ganga þannig lengra en evrópska
...