Litríkir loftbelgir svífa um himininn yfir borginni Sao Paulo í Brasilíu. Belgirnir hafa verið smíðaðir í flýti í skúmaskotum borgarinnar en verði listamennirnir gómaðir eiga þeir fangelsisvist yfir höfði sér
![Loftbelgjamanía „Ég var graffari og þarna fann ég nýjan vettvang fyrir listina mína – himininn,“ segir Dargis.](/myndir/gagnasafn/2024/07/17/20c43ea3-1fe8-4b67-86bd-a0ebce425e79.jpg)
Loftbelgjamanía „Ég var graffari og þarna fann ég nýjan vettvang fyrir listina mína – himininn,“ segir Dargis.
Snædís Björnsdóttir
snaedis@mbl.is
Litríkir loftbelgir svífa um himininn yfir borginni Sao Paulo í Brasilíu. Belgirnir hafa verið smíðaðir í flýti í skúmaskotum borgarinnar en verði listamennirnir gómaðir eiga þeir fangelsisvist yfir höfði sér. Í Brasilíu eru loftbelgir af þessu tagi nefnilega bannaðir. Þannig má lýsa sögusviði heimildarmyndarinnar Balomania (2024) í leikstjórn dansk-brasilíska leikstjórans Sissel Morell Dargis, en hún er opnunarmynd alþjóðlegu kvikmyndahátíðarinnar IceDocs sem hefst á Akranesi í kvöld og stendur til 21. júlí. Morgunblaðið ræddi við Dargis um undirheima Brasilíu, loftbelgjalistina og hættuna sem henni fylgir.
Graffað á himininn
„Ég hafði verið að graffa í Sao Paulo um nokkurt skeið þegar ég vingaðist
...