Breytingar Bruno Fernandes og félagar færa sig um set eftir ár.
Breytingar Bruno Fernandes og félagar færa sig um set eftir ár. — AFP/Oli Scarff

Sýn mun greiða svipað verð fyrir sýningarrétt á enska boltanum í þrjú ár og Síminn hefur gert undanfarin ár, að teknu tilliti til verðlagsþróunar frá síðasta samningi. Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins mun fyrirtækið greiða á bilinu 1,3-1,4 milljarða króna ár hvert, alls um fjóra milljarða. Sýn hafði betur gegn Símanum í útboði um sýningarréttinn fyrir tímabilin 2025-2028.

Athygli vekur að Ísland var eina markaðssvæðið þar sem sýningarréttur að enska boltanum var boðinn út að þessu sinni. Alla jafna eru mörg svæði boðin út á sama tíma. » 10