Inga María Guðmundsdóttir
Inga María Guðmundsdóttir

Hagnaður Dress Up Games nam í fyrra um 4,4 m.kr., samanborið við 1,2 m.kr. tap árið áður. Tekjur námu um 11,8 m.kr. og drógust saman um 6,8 m.kr. frá fyrra ári. Eigið fé var í árslok um 84 m.kr.

Félagið hagnaðist vel á árum áður og á árunum 2008-2010 um rúmar 300 m.kr. en síðan þá hafa tekjur þess lækkað töluvert. Eigandi fyrirtækisins er Inga María Guðmundsdóttir, búsett á Ísafirði, en hún stofnaði vefsíðuna árið 1998. Dress Up Games er vefsíða sem býður upp á samnefndan dúkkulísuleik og aðra svipaða sem hægt er að spila ókeypis, en tekjur síðunnar koma af auglýsingasölu.