Víkingar þurfa að fara Fjallabaksleiðina í Evrópumótum karla í fótbolta eftir ósigur gegn írsku meisturunum Shamrock Rovers í Dublin í gærkvöld, 2:1, og þar með líka 2:1 samanlagt. Þar stóðu þeir eins tæpt og mögulegt var því fyrirliðinn Nikolaj…
![Vonbrigði Nikolaj Hansen grípur um höfuð sér eftir að hafa skotið í stöng úr vítaspyrnunni í blálokin í Dublin.](/myndir/gagnasafn/2024/07/17/e9b2b0fd-a61f-4584-9a2f-40916d48f7e4.jpg)
Vonbrigði Nikolaj Hansen grípur um höfuð sér eftir að hafa skotið í stöng úr vítaspyrnunni í blálokin í Dublin.
— Ljósmynd/Inpho Photography
Evrópukeppni
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Víkingar þurfa að fara Fjallabaksleiðina í Evrópumótum karla í fótbolta eftir ósigur gegn írsku meisturunum Shamrock Rovers í Dublin í gærkvöld, 2:1, og þar með líka 2:1 samanlagt.
Þar stóðu þeir eins tæpt og mögulegt var því fyrirliðinn Nikolaj Hansen skaut í stöng úr vítaspyrnu, með síðustu spyrnu leiksins, þar sem hann hefði getað tryggt Víkingum framlengingu.
Þar með er „leið 1“ í undankeppni Meistaradeildarinnar, sem Blikar fóru í fyrra með því að vinna Shamrock í fyrstu umferð undankeppninnar, úr sögunni hjá Víkingum.
Þeir fá annað tækifæri en flytjast nú beint yfir í 2. umferð Sambandsdeildarinnar og þurfa að komast í
...