![Eignabyggð er að ljúka uppbyggingu á þremur húsum í Borgahellu 29-33 í Hafnarfirði.](/myndir/gagnasafn/2024/07/17/1515fabc-b7d6-4630-82a5-8f06f87b82f7.jpg)
Eignabyggð er að ljúka uppbyggingu á þremur húsum í Borgahellu 29-33 í Hafnarfirði.
— Ljósmynd/Eignabyggð
Brynjólfur Smári Þorkelsson, framkvæmdastjóri og annar tveggja eigenda Eignabyggðar, segir fyrirtækið aldrei hafa haft jafn mörg verkefni vegna uppbyggingar á atvinnuhúsnæði og nú. Hefur fyrirtækið byggt tugi þúsunda fermetra af atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu og víðar.
„Við erum fullbókaðir út þetta ár og næsta ár. Ég er þannig með mörg verkefni á borðinu sem ég þarf að reikna út. Ég hef aldrei verið með svona mörg verkefni í körfunni,“ segir Brynjólfur Smári um stöðuna.
Má út frá því ætla að stjórnendur fyrirtækja séu bjartsýnir á framtíðina þrátt fyrir að það sé smá mótvindur núna?
„Já. Ég myndi segja það,“ segir Brynjólfur en Eignabyggð hefur selt fasteignafélaginu Kaldalóni þrjár byggingar í Borgahellu 29-33 í Hafnarfirði.
...