Flotbryggjur Með tilkomu flotbryggja þarf umferð skemmtiferðaskipa ekki að teppa aðrar bryggjur í höfninni.
Flotbryggjur Með tilkomu flotbryggja þarf umferð skemmtiferðaskipa ekki að teppa aðrar bryggjur í höfninni. — Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson

Fyrr í sumar voru settar upp flotbryggjur á norðurfyllingu Húsavíkurhafnar við slökkvistöðina í bænum. Kristinn Jóhann Ásgrímsson, rekstrarstjóri hafna Norðurþings, segir að með tilkomu þeirra þurfi umferð skemmtiferðaskipa ekki að teppa aðrar bryggjur í höfninni og öruggara pláss sé fyrir smábátana. Þá segir Kristinn að betra aðgengi sé fyrir rútur og fyrir ferðamennina á þessum stað.

Til Húsavíkur koma á bilinu 50-60 skemmtiferðaskip með um 15-20 þúsund farþega á ári og sum þeirra eru of stór til að leggjast að bryggju og þurfa að vera á akkeri úti á pollinum og

...