Miðborg Reykjavíkur hefur breyst mikið á síðustu árum. Laugavegi hefur að stórum hluta verið breytt í göngugötu og mörgum rótgrónum verslunum hefur verið lokað eða rekstur þeirra fluttur annað. Fjölmörg ný fyrirtæki hafa komið sér fyrir við þessa…
Götumynd Tveir kebabstaðir hlið við hlið og ísbúð á nýuppgerðu svæði við Hlemm.
Götumynd Tveir kebabstaðir hlið við hlið og ísbúð á nýuppgerðu svæði við Hlemm. — Morgunblaðið/Anton Brink

Höskuldur Daði Magnússon

hdm@mbl.is

Miðborg Reykjavíkur hefur breyst mikið á síðustu árum. Laugavegi hefur að stórum hluta verið breytt í göngugötu og mörgum rótgrónum verslunum hefur verið lokað eða rekstur þeirra fluttur annað. Fjölmörg ný fyrirtæki hafa komið sér fyrir við þessa fornfrægu verslunargötu og eiga það mörg sameiginlegt að njóta helst vinsælda hjá fjölda erlendra ferðamanna sem þarna fara um. Sum þeirra virðast jafnvel aðeins endast í nokkra mánuði.

Eins og sjá má af meðfylgjandi myndum má nú ganga að snyrtistofum, nuddstofum, húðflúrstofum, kebabstöðum, ísbúðum og auðvitað lundabúðum vísum við Laugaveginn. Auk þess eru nokkrar smáverslanir sem kallast „markets“ að erlendri fyrirmynd. Þá eru ófáir hraðbankar, sem er breyting frá því sem áður var.