Öll þau banaslys sem orðið hafa í umferðinni á árinu verða skoðuð í þaula. Forstjóri Vegagerðarinnar segir fjöldann gefa til kynna að bakslag hafi orðið. Ellefu hafa látist í átta umferðarslysum það sem af er ári og er þó árið aðeins rétt rúmlega hálfnað
Bakslag Vegamálastjóri segir fjölda banaslysa í ár sorglegt bakslag.
Bakslag Vegamálastjóri segir fjölda banaslysa í ár sorglegt bakslag. — Morgunblaðið/Eggert

Egill Aaron Ægisson

egillaaron@mbl.is

Öll þau banaslys sem orðið hafa í umferðinni á árinu verða skoðuð í þaula. Forstjóri Vegagerðarinnar segir fjöldann gefa til kynna að bakslag hafi orðið. Ellefu hafa látist í átta umferðarslysum það sem af er ári og er þó árið aðeins rétt rúmlega hálfnað.

„Okkur finnst það hræðilegt,“ segir Bergþóra Þorkelsdóttir forstjóri Vegagerðarinnar.

„Þetta er virkilega sorglegt af því að það hafði náðst árangur í millitíðinni. Við vorum dálítið á réttri leið og svo kemur þetta svakalega bakslag,“ segir Bergþóra og vísar þar til síðustu ára þar sem heildarfjöldi banaslysa hafði aldrei farið yfir tíu á ári. Leita þarf aftur til ársins 2018 til að finna jafn mörg dauðsföll í umferðinni.

...