Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Ísraelsher hélt áfram loftárásum sínum á Gasasvæðið í gær, en Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, hét því í fyrradag að Ísraelar myndu halda áfram þrýstingi sínum á hryðjuverkasamtökin Hamas, á sama tíma og vonir alþjóðasamfélagsins hafa staðið til þess að hægt verði að semja um vopnahlé í átökunum á Gasasvæðinu.
Netanjahú sagði í ræðu á ísraelska þinginu á þriðjudaginn að Ísraelsmenn væru með öll undirtök í átökunum, og að nú væri rétti tíminn til þess að knýja fram lausn allra gíslanna sem Hamas-samtökin hefðu enn á valdi sínu, bæði þeirra sem væru á lífi, auk líkamsleifa hinna látnu.
Ismail Haniyeh, stjórnmálaleiðtogi Hamas-samtakanna, sakaði í gær Ísraelsmenn um að grafa viljandi undan vopnahlésviðræðunum með árásum sínum,
...