Englendingurinn Daniel Brown er óvænt efstur eftir fyrsta hring Opna mótsins, fjórða og síðasta risamóts ársins í golfi. Leikið er í Troon í Skotlandi.
Brown er að keppa á sínu fyrsta risamóti, en þrátt fyrir það lék hann fyrsta hringinn í gær á sex höggum undir pari og er einu höggi á undan Íranum Shane Lowry.
Brown, sem er 29 ára, vann sér inn keppnisrétt á Evrópumótaröðinni á síðasta ári. Hann hefur aðeins unnið eitt mót á sterkustu mótaröð álfunnar. Árið 2018 var hann á Áskorendamótaröðinni, sem er einu þrepi neðar en Evrópumótaröðin, og í vandræðum með að komast í gegnum niðurskurðinn. Nú er sagan önnur.
Lowry er öllu þekktari en hann vann Opna mótið árið 2019 og hefur endað í fjórum efstu sætunum á öllum fjórum risamótunum. Justin Thomas frá Bandaríkjunum
...