Gdynia Daníel Halldórsson sækir að körfu Serba í leiknum í gær.
Gdynia Daníel Halldórsson sækir að körfu Serba í leiknum í gær. — Ljósmynd/FIBA

Íslenska 20 ára landsliðið í körfuknattleik er á leið í hreinan úrslitaleik um áframhaldandi sæti í A-deild Evrópumóts karla gegn Norður-Makedóníu í Gdynia í Póllandi á morgun. Íslensku strákarnir töpuðu fyrir sterku liði Serbíu, 101:79, í keppninni um 9.-16. sæti á mótinu í gær og leika því um 13.-16. sæti. Tvö neðstu liðin falla, þau sem tapa fyrri leikjunum í þeirri keppni. Almar Orri Atlason skoraði 20 stig gegn Serbum og Tómas Valur Þrastarson 18.