Pétur Þór Gunnarsson fæddist 12. september 1958. Hann lést 28. júní 2024. Útför fór fram 18. júlí 2024.

Elsku pabbi, ég er búin að sakna þín óbærilega frá því að þú kvaddir okkur.

Eins skrítið og það virðist hljóma þá eru nokkur ár síðan ég byrjaði að kveðja þig en þrátt fyrir það þá var ég engan veginn tilbúin að sleppa þegar stundin rann upp.

Síðustu daga hefur hugurinn verið fullur af minningum um þig og niðurstaðan er sú að mér finnst þú besti pabbi í heimi! Það eru forréttindi að hafa átt pabba eins og þig, pabba sem stóð alltaf þétt við bakið á mér og studdi mig í einu og öllu, pabba sem var blíður og góður og sparaði aldrei hrósin og hvatningarorðin. Þú varst lifandi og skemmtilegur og breiða brosið þitt smitaði frá sér svo mikilli gleði.

Ég minnist sólbrúna

...