Eyþór Jónsson fæddist 22. apríl 1961 á Húsavík. Hann lést á Sjúkrahúsinu á Akureyri 8. júlí 2024.

Foreldrar hans voru Jón Ólafur Hermannsson, f. 12.4. 1918, d. 26.8. 2006, og Stefanía Tómasína Jóhannesdóttir, f. 8.11. 1926, d. 6.10. 2020.

Systkini Eyþórs eru Hermann Jóhannes, f. 1946, kona hans er Hildur Gunnarsdóttir, f. 1946. Sigurveig, f. 1949, hennar maður er Guðmundur Sigurðsson, f. 1939, og Sölvi, f. 1954, d. 2013, hans kona er Kristín Guðmundsdóttir, f. 1954.

Eyþór ólst upp í Flatey á Skjálfanda þar til árið 1967 þegar fjölskyldan fluttist til Húsavíkur. Hann byrjaði ungur að vinna í fiski, t.d. söltun, uppskipun, 14 ára réri hann með Jóa bróður sínum. Einnig var hann mikið hjá systur sinni í Fagranesi, Aðaldal, og hjálpaði til við sveitastörfin. Þegar hann fluttist til Akureyrar vann

...