England Jökull Andrésson hefur verið í röðum Reading frá 2017.
England Jökull Andrésson hefur verið í röðum Reading frá 2017. — Morgunblaðið/Eggert

Knattspyrnumarkvörðurinn Jökull Andrésson er á leið heim í uppeldisfélagið sitt, Aftureldingu, eftir sjö ár í röðum enska félagsins Reading, samkvæmt heimildum Morgunblaðsins. Jökull er 22 ára, hefur leikið einn A-landsleik og tvo leiki með 21-árs landsliðinu. Hann hefur ekki spilað með aðalliði Reading en verið lánaður til fimm félaga, til Carlisle í vetur og áður til Stevenage, Exeter, Morecambe og Hungerford. Afturelding er í níunda sæti 1. deildar.