Veitingastaðurinn Pizza Popolare í Pósthúsi Mathöll í Pósthússtræti í Reykjavík er á meðal 50 bestu pitsustaða í Evrópu, að mati tímaritsins 50 Top Pizza (50 Top Pizza Europe 2024 – Excellent Pizzerias og 50 Top Pizza Europa 2024 – Guida completa)
Fullkomin Guðmundur G. Pétursson og Ismail ánægðir með útkomuna.
Fullkomin Guðmundur G. Pétursson og Ismail ánægðir með útkomuna.

Steinþór Guðbjartsson

steinthor@mbl.is

Veitingastaðurinn Pizza Popolare í Pósthúsi Mathöll í Pósthússtræti í Reykjavík er á meðal 50 bestu pitsustaða í Evrópu, að mati tímaritsins 50 Top Pizza (50 Top Pizza Europe 2024 – Excellent Pizzerias og 50 Top Pizza Europa 2024 – Guida completa). „Þetta er risastórt fyrir okkur í lítilli mathöll í Reykjavík á litla Íslandi, mikil viðurkenning og góð meðmæli,“ segir Guðmundur G. Pétursson, annar eigandi staðarins.

Guðmundur hefur starfað í hótel- og veitingageiranum í rúmlega 20 ár. „Pitsa er síðasta máltíðin mín,“ útskýrir hann. Þegar opnun Pósthúss Mathallar hafi verið í undirbúningi hafi þeir frændur, hann og Aron Lárusson, verið sannfærðir um að þeir gætu verið þar með þennan sérstaka pitsustað. Staðsetningin gæti ekki verið betri

...