Hátíðartónleikar Skálholtshátíðar eru í dag, 20. júlí, og hefjast kl. 16. Jón Bjarnason organisti í Skálholti er stjórnandi tónleikanna, en í tilefni af þeim nú er því sérstaklega haldið til haga að um þessar mundir er 75 ára afmæli Skálholtshátíðar
Biskupssetur Dómkirkjan í Skálholti gnæfir hátt yfir sveitina.
Biskupssetur Dómkirkjan í Skálholti gnæfir hátt yfir sveitina. — Morgunblaðið/Sigurður Bogi

Sigurður Bogi Sævarsson

sbs@mbl.is

Hátíðartónleikar Skálholtshátíðar eru í dag, 20. júlí, og hefjast kl. 16. Jón Bjarnason organisti í Skálholti er stjórnandi tónleikanna, en í tilefni af þeim nú er því sérstaklega haldið til haga að um þessar mundir er 75 ára afmæli Skálholtshátíðar.

Hápunkturinn á hátíðartónleikunum er flutningur á kantötu eftir Johann Sebastian Bach, Vergnügte Ruh, beliebte Seelenlust, BWV 170. Þetta er sólókantata sem Sigríður Ósk Kristjánsdóttir flytur ásamt orgeli, óbói og strengjasveit. Auk þess verður fluttur orgelkonsert eftir Georg Friedrich Handel og Skálholtskórinn flytur verk eftir Antonio Lotti. Auk Sigríðar Óskar Kristjánsdóttur eru helstu flytjendur Páll Palomares konsertmeistari, Matthías Birgir Nardeau óbóleikari og Skálholtskórinn.

...