LG50, félag í eigu Avrahams Feldmans, rabbína gyðinga á Íslandi, hefur fest kaup á Hverfisgötu 33 í Reykjavík. Kaupverðið er 325 milljónir króna alls, en félagið keypti bæði efri og neðri hæðina. Neðri hæðina keypti félag Feldmans af Skúlagarði hf
Selt Húsið við Hverfisgötu hefur hýst höfuðstöðvar Framsóknar frá 1998.
Selt Húsið við Hverfisgötu hefur hýst höfuðstöðvar Framsóknar frá 1998. — Morgunblaðið/sisi

Sonja Sif Þórólfsdóttir

sonja@mbl.is

LG50, félag í eigu Avrahams Feldmans, rabbína gyðinga á Íslandi, hefur fest kaup á Hverfisgötu 33 í Reykjavík. Kaupverðið er 325 milljónir króna alls, en félagið keypti bæði efri og neðri hæðina.

Neðri hæðina keypti félag Feldmans af Skúlagarði hf. á rúmar 167 milljónir króna. Efri hæðina keypti félagið af R101 ehf. á rúmar 157 milljónir króna. Hefur félag Feldmans þegar fengið húsið afhent.

...