Sundkappinn og ólympíufarinn Anton Sveinn McKee er í framboði til íþróttamannanefndar Alþjóðaólympíunefndarinnar og er fyrsti Íslendingurinn sem falast eftir sæti í nefndinni. Hann býður sig fram með stuðningi ÍSÍ. Anton er einn af 29 keppendum á Ólympíuleikunum í París sem bjóða sig fram en í nefndina verða kosnir fjórir íþróttamenn úr fjórum mismunandi íþróttagreinum.