Bruce Dickinson og Paul Di’Anno með Stjepan Juras á milli sín.
Bruce Dickinson og Paul Di’Anno með Stjepan Juras á milli sín. — Instagram

Fundur Bruce Dickinson, söngvari Iron Maiden, hitti forvera sinn í breska málmbandinu, Paul Di’Anno í fyrsta skipti baksviðs eftir tónleika sólóbands síns í Zagreb í Króatíu um liðna helgi. Þetta fullyrðir maðurinn sem kom fundinum á, Stjepan Juras, aðdáandi og höfundur margra bóka um Iron Maiden. Di’Anno er í Zagreb að jafna sig eftir aðgerð á hné. „Sagan endurskrifuð enn og aftur! Þetta hefur ekki áður gerst!“