Úr þáttunum Women in Blue.
Úr þáttunum Women in Blue. — Apple TV+

Brautryðjendur Women in Blue nefnist nýr dramamyndaflokkur sem efnisveitan Apple TV+ hefur sýningar á um mánaðamótin. Þar er hermt af fyrstu konunum sem gengu til liðs við lögregluna í Mexíkóborg á öndverðum áttunda áratugnum. Það var þrautin þyngri enda áttuðu konurnar sig á því að þær væru bara þarna til málamynda og til að milda ímynd lögreglunnar. Þeim var ekki ætlað að uppræta glæpi og fengu flautur í stað byssna. Þá minnti einkennisbúningurinn meira á flugfreyjur en lögreglukonur, stutt pils og há leðurstígvél. En konurnar dóu ekki ráðalausar. Með helstu hlutverk fara Bárbara Mori, Amorita Rasgado, Ximena Sariñana og Natalia Téllez.