Strandlengjan við Reykjavík hefur breyst mikið á undanförnum áratugum með umfangsmiklum landfyllingum. Hér að ofan má sjá tvær loftmyndir úr safni Loftmynda. Myndin vinstra megin er af strandlengjunni árið 1954 og myndin hægra megin er tekin í fyrra

Óskar Bergsson

oskar@mbl.is

Strandlengjan við Reykjavík hefur breyst mikið á undanförnum áratugum með umfangsmiklum landfyllingum. Hér að ofan má sjá tvær loftmyndir úr safni Loftmynda. Myndin vinstra megin er af strandlengjunni árið 1954 og myndin hægra megin er tekin í fyrra.

Á myndinni frá 1954 sést að byrjað er að byggja Áburðarverksmiðju ríkisins og hafnarkantinn þar. Mikill vogur hefur verið þar sem ruslahaugar borgarinnar voru í áratugi og glöggt sést hvernig búið er að fylla upp í voginn, um það bil 20 hektara. Gufunesbærinn sést á báðum myndum rétt vestan við iðnaðarhverfið við Gylfaflöt þar sem túnin voru áður.

Vestan við Gufunesveginn þar sem Hamrahverfið er í dag eru greinileg ummerki eftir skurðgröft. Gufunesvegurinn lá frá

...