2002 „Honum var rænt […] við sáum ummerki um það.“ Helgi Sveinbjörnsson, eigandi Slakka
Selrán Lúlli í stíu sinni skömmu áður en hann var numinn á brott.
Selrán Lúlli í stíu sinni skömmu áður en hann var numinn á brott. — Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson

Baksvið

Elínborg Una Einarsdóttir

elinborg@mbl.is

Sumarið 2002 hvarf selkópurinn Lúlli litli labbakútur með dullarfullum hætti úr stíu sinni í dýragarðinum Slakka. Nú 22 árum síðar er enn ekki vitað hver afdrif Lúlla urðu en stofnanda Slakka grunar að hvarfið hafi borið að með glæpsamlegum hætti.

„Selkópsins Lúlla er enn sárt saknað í dýragarðinum í Slakka í Laugarási í Biskupstungum. Engar vísbendingar hafa komið fram um hvarf hans, að sögn Helga Sveinbjörnssonar, eins eigenda dýragarðsins, en einna helst er talið að honum hafi verið rænt. Helgi telur að minnsta kosti litlar líkur á því að Lúlli litli hefði getað strokið af bæ einn og óstuddur.“

Svo hófst frétt um málið á mbl.is 15.

...