Framherjinn Stefán Ingi Sigurðarson er kominn til norska félagsins Sandefjord. Hann kemur til Sandefjord frá Patro Eisden í Belgíu og gerir samning til ársins 2027. Hinn 23 ára gamli Stefán er uppalinn hjá Breiðabliki en hann hefur einnig leikið með Grindavík, ÍBV og HK hér á landi. Hann gekk í raðir Patro Eisden á síðusta ári. Sandefjord er í botnsæti norsku úrvalsdeildarinnar með 13 stig eftir 15 leiki.