Vilhjálmur Ómar Sverrisson (Villi) fæddist 25. júlí 1977. Hann lést 20. júní 2024.

Útför Villa fór fram 16. júlí 2024.

Elsku Villi okkar er látinn og það er erfitt að skilja hvernig það getur staðist.

Ég kynntist Jenna, manninum mínum, sumarið 2004 og honum fylgdi stóri bróðir, Villi. Mér líkaði strax vel við Villa og uppgötvaði fljótt að hann væri skemmtilegur sprellari og góður strákur. Við Jenni og strákarnir okkar, þeir Kristján, Kjartan, Kolbeinn og Villi, Gunna, Grímur Steinn og Ásta vorum mjög náin og góðir vinir. Það skipti engu máli að við bjuggum í Danmörku og þau í Þýskalandi. Við vorum dugleg að heimsækja hvert annað og frá þessum heimsóknum og ferðalögum eru margar góðar minningar sem gott er að sækja í á þessum erfiðu tímum. Villi var mjög stríðinn og elskaði að vesenast með

...