Miss Fallaci er glæný þáttaröð, framleidd af Paramount, sem sýnd verður í Sjónvarpi Símans Premium. Fyrsti þátturinn verður sýndur mánudaginn 22. júlí og síðan verða vikulegar sýningar. Þættirnir, sem eru alls átta, hafa ekki enn verið sýndir í…
Ítalska leikkonan Miriam Leone fer með hlutverk Fallaci en hún er fyrrverandi fegurðardrottning.
Ítalska leikkonan Miriam Leone fer með hlutverk Fallaci en hún er fyrrverandi fegurðardrottning.

Miss Fallaci er glæný þáttaröð, framleidd af Paramount, sem sýnd verður í Sjónvarpi Símans Premium. Fyrsti þátturinn verður sýndur mánudaginn 22. júlí og síðan verða vikulegar sýningar. Þættirnir, sem eru alls átta, hafa ekki enn verið sýndir í ítölsku sjónvarpi, en munu vafalaust vekja athygli þar í landi þar sem minning Fallaci er höfð í heiðri.

Ítalska leikkonan Miriam Leone fer með hlutverk Fallaci. Þess má geta að Jóhannes Haukur leikur Orson Welles í þáttunum og er kynntur til leiks í öðrum þætti þegar Fallaci er komin til Hollywood.

Oriana Fallaci var ítalskur heimsfrægur blaðamaður, fædd árið 1929. Á árum seinna stríðs var hún í ítölsku andspyrnuhreyfingunni, þá unglingur, og varð seinna stríðsfréttamaður.

Á löngum ferli tók

...