Jón Hafsteinn Eggertsson vélfræðingur fæddist 15. september 1937. Hann lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi 10. júlí 2024.

Foreldrar Jóns voru Guðríður Gunnlaugsdóttir, f. 7. janúar 1902, d. 12. nóvember 1981, og Eggert Engilbertsson, f. 26. júlí 1904, d. 24. febrúar 1981. Systkini Jóns: Engilbert, f. 14. nóvember 1928, d. 22. nóvember 1995, og Guðrún Bryndís, f. 29. apríl 1932. Hálfsystir sammæðra var Hulda Ragnarsdóttir, f. 8. nóvember 1923, d. 31. júlí 2016.

Hinn 7. janúar 1962 kvæntist Jón eftirlifandi eiginkonu sinni, Ingu Dóru Jóhannesdóttur, börn þeirra eru: 1) Eggert Elfar, f. 21. mars 1960, giftur Sólveigu Sigurþórsdóttur, synir þeirra eru: Jón Þór, sambýliskona Auður Magnúsdóttir, börn Baltasar Breki og Rúrik Leo. Sindri Snær og Fannar Freyr. 2) Jóhanna Lind, f. 11. júlí 1967, gift Þórhalli Sverrissyni, þau eiga soninn

...