![Silja Bára Ómarsdóttir](/myndir/gagnasafn/2024/07/22/4740671e-81d9-4648-a2bf-db79de8ae8de.jpg)
Engir ferlar eru til innan flokks demókrata til að leysa úr þeirri stöðu sem upp er komin nú þegar Joe Biden Bandaríkjaforseti hefur fallið frá framboði sínu til forseta.
Silja Bára Ómarsdóttir, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands, segir að ef flokkurinn vilji sameinast og koma sterkur inn í kosningarnar sé þessi lausn, að Kamala Harris verði forsetaefni flokksins, sennilega skynsamlegust. „Frekar en að reyna að fara í einhverjar hraðar forkosningar. Það þarf að vera komin niðurstaða 6. ágúst vegna þess að þá þarf að setja nafn frambjóðanda á kjörseðilinn í Ohio,“ segir Silja.
„Þau þurfa að sameinast um einhvern frambjóðanda og Harris þarf að vera á kjörseðlinum. Annars má ekki nota allt fé sem Biden hefur safnað í framboð einhvers sem ekki er í framboði nú þegar.“
Silja kveðst ekki muna eftir því að þetta hafi gerst áður, allavega ekki á 20. og 21. öld, að frambjóðandi sem sigrað hefur í forvali
...