— AFP/Kent Nishimura

Sögulegir tímar eru runnir upp í Bandaríkjunum eftir að Joe Biden Bandaríkjaforseti ákvað að falla frá framboði sínu til forseta. Um leið og hann tilkynnti um brotthvarf sitt lýsti hann hug sínum á að Kamala Harris varaforseti yrði frambjóðandi Demókrataflokksins í kosningunum.

Að ofan má sjá þegar Biden gekk um borð í flugvél sína í Las Vegas á miðvikudag. Forsetinn hefur ekki sést opinberlega síðan, en sama dag var greint frá því að hann hefði smitast af kórónuveirunni.