Tónlistarmaðurinn Bragi Valdimar Skúlason kynnir nýtt lag hljómsveitarinnar Baggalúts í þætti Heiðars Austmann, Íslenskri tónlist. Lagið heitir Allir eru að fara í kántrí
Tónlistarmaðurinn Bragi Valdimar Skúlason kynnir nýtt lag hljómsveitarinnar Baggalúts í þætti Heiðars Austmann, Íslenskri tónlist. Lagið heitir Allir eru að fara í kántrí.
Bragi segir að um kántrílag sé að ræða og að fagmenn í kántrítónlist frá Nashville í Bandaríkjunum hafi komið að gerð þess.
„Við vorum að spila með frábærum tónlistarmönnum frá Nashville sem komu og spiluðu með okkur og Sinfóníuhljómsveit Íslands,“ segir hann og bætir við: „Þannig að við nýttum tækifærið, gripum þá með okkur inn í stúdíó.“
Lesa má meira á k100.is.