Í kjölfar brotthvarfs Joes Bidens Bandaríkjaforseta á elleftu stundu, úr harðnandi kosningabaráttu fyrir forsetakosningarnar vestanhafs í nóvember, munu flokkssystkini forsetans fráfarandi „hefja gagnsætt og skipulegt ferli þess að stíga fram…
![Á rökstólum Demókrötum er martröðin 27. júní í fersku minni þegar Joe Biden galt afhroð í einvíginu við Trump.](/myndir/gagnasafn/2024/07/22/7b6113a6-7072-430d-96cb-93b7b3cae56a.jpg)
Á rökstólum Demókrötum er martröðin 27. júní í fersku minni þegar Joe Biden galt afhroð í einvíginu við Trump.
— AFP/Andrew Caballero-Reynolds
Atli Steinn Guðmundsson
atlisteinn@mbl.is
Í kjölfar brotthvarfs Joes Bidens Bandaríkjaforseta á elleftu stundu, úr harðnandi kosningabaráttu fyrir forsetakosningarnar vestanhafs í nóvember, munu flokkssystkini forsetans fráfarandi „hefja gagnsætt og skipulegt ferli þess að stíga fram sem sameinaður Demókrataflokkur með frambjóðanda sem er í stakk búinn til að sigra Donald Trump í nóvember“, eins og Jaime Harrison flokksformaður sagði í yfirlýsingu í gær.
Rétt rúmir eitt hundrað dagar eru til stefnu fram að kosningum og veltir AFP-fréttastofan upp þeim möguleikum er demókrötum standa til boða á lokaspretti sem nálgast hröðum skrefum.
Landsfundurinn í uppnámi
„Kjörmenn okkar [Demókrataflokksins] eru þess albúnir að taka
...