Breiðablik er aðeins þremur stigum á eftir toppliði Víkings úr Reykjavík í Bestu deild karla í fótbolta eftir heimasigur á KR í gærkvöldi, 4:2. KR er aðeins tveimur stigum fyrir ofan fallsæti eftir 15 umferðir. Stjarnan fór upp í efri hlutann með sigri á botnliði Fylkis á heimavelli 2:0. Á laugardag vann KA 1:0-sigur á Víkingi og HK og Vestri skildu jöfn, 1:1, í miklum fallslag. » 27