„Ég heyri það frá foreldrum að þeim finnst þeir ekki fá nógu góðar upplýsingar um stöðu barna sinna í námi. Þá held ég að við verðum að skoða: hvað er það í þessu sem við þurfum að gera öðruvísi?“ segir Ómar Örn Magnússon skólastjóri Hagaskóla
![Nemar Grunnskólabörn í 10. bekk fá einkunnir í bókstöfum.](/myndir/gagnasafn/2024/07/22/5102d074-ec0a-4984-a950-3cb41380ddc5.jpg)
Nemar Grunnskólabörn í 10. bekk fá einkunnir í bókstöfum.
— Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Valgerður Laufey Guðmundsdóttir
vally@mbl.is
„Ég heyri það frá foreldrum að þeim finnst þeir ekki fá nógu góðar upplýsingar um stöðu barna sinna í námi. Þá held ég að við verðum að skoða: hvað er það í þessu sem við þurfum að gera öðruvísi?“ segir Ómar Örn Magnússon skólastjóri Hagaskóla.
„Það er námskrá sem kveður á um matsviðmið í einkunnagjöf, en ég held að hver sá sem les þessi matsviðmið sjái að það er ekki tryggt að ákveðin matsviðmið séu metin og vegin á sama hátt í skólum,“ segir Ómar.
Hann segir fólk ekki skilja fyrirkomulagið á sama hátt og það sé heldur ekki skilið á sama
...