Fylkir fór úr botnsæti Bestu deildar kvenna í fótbolta með sannfærandi heimasigri á Tindastóli í 13. umferðinni í Árbænum í gær, 4:1. Sigurinn var langþráður því hann var sá fyrsti hjá Fylkisliðinu frá því liðið vann Keflavík, 4:2, 2
![Árbærinn Signý Lára Bjarnadóttir úr Fylki reynir að stöðva Birgittu Rún Finnbogadóttur úr Tindastóli í fallslagnum mikla í Árbænum í gær.](/myndir/gagnasafn/2024/07/22/392b0fa4-c928-4b80-84ac-d3d3215f5760.jpg)
Árbærinn Signý Lára Bjarnadóttir úr Fylki reynir að stöðva Birgittu Rún Finnbogadóttur úr Tindastóli í fallslagnum mikla í Árbænum í gær.
— Morgunblaðið/Ólafur Árdal
Besta deildin
Jóhann Ingi Hafþórsson
johanningi@mbl.is
Fylkir fór úr botnsæti Bestu deildar kvenna í fótbolta með sannfærandi heimasigri á Tindastóli í 13. umferðinni í Árbænum í gær, 4:1. Sigurinn var langþráður því hann var sá fyrsti hjá Fylkisliðinu frá því liðið vann Keflavík, 4:2, 2. maí. Fylkir er nú með níu stig, tveimur stigum á eftir Tindastóli.
Jordyn Rhodes kom Tindastóli yfir en þær Abigail Boyan, Helga Guðrún Kristinsdóttir, Guðrún Karítas Sigurðardóttir og Kolfinna Baldursdóttir svöruðu fyrir Fylkiskonur.
Breiðablik og Valur unnu bæði nauma sigra á laugardag. Liðin eru nú 12 stigum á undan Þór/KA og í tveggja hesta kapphlaupi um Íslandsmeistaratitilinn.
Breiðablik
...