— Samsett mynd/Eva Ruza

Eva Ruza, þáttastjórnandi á K100 og skemmtikraftur, kann svo sannarlega að klæða sig vel en um daginn klæddi hún sig í handgerðan kjól úr snakkpokum. Kjóllinn hefur vakið mikla athygli en Eva birti myndir af sér í honum á samfélagsmiðlum í síðustu viku. Lýsir hún því að kjóllinn sé heimagerður og að systir hennar, Tinna, hafi hjálpað mikið við að gera skemmtilega hugmynd að veruleika.

„Ekki hika við að senda okkur hugmyndir. Þær geta orðið að veruleika,“ segir Eva í lok færslu sinnar á Facebook.

Lestu meira um kjólinn á k100.is.