Evrópa Nikolaj og Damir eiga stórleiki framundan á næstu dögum.
Evrópa Nikolaj og Damir eiga stórleiki framundan á næstu dögum. — Morgunblaðið/Óttar

Víðir Sigurðsson

vs@mbl.is

Bæði Víkingur og Breiðablik eiga raunhæfa möguleika á að vinna einvígi sín í 3. umferð Sambandsdeildar karla í fótbolta, svo framarlega sem þau komast í gegnum 2. umferð keppninnar sem er leikin í þessari og næstu viku.

Víkingar mæta Egnatia frá Albaníu í 2. umferð, Breiðablik mætir Drita frá Kósóvó, Valur mætir St. Mirren frá Skotlandi og Stjarnan mætir Paide frá Eistlandi en öll liðin leika heimaleiki sína á fimmtudagskvöldið kemur og svo útileikina í næstu viku.

Dregið var til þriðju umferðarinnar í gær og niðurstaðan varð þessi:

Sigurliðið í einvígi Víkings og Egnatia mætir annaðhvort Virtus frá San Marínó eða Flora Tallinn frá Eistlandi í þriðju

...