Sindri þór fæddist í Reykjavík 16. mars 1995. Hann lést á heimili sínu 8. júlí 2024.

Foreldrar hans eru Júlíana Ósk Guðmundsdóttir, f. 1966, og Hannes Sigurður Guðmundsson, f. 1959. Árið 1999, þegar Sindri var fjögurra og hálfs árs, kom Ólafur Björn Heimisson, f. 1961, inn í líf hans og gekk honum í föðurstað. Systkini Sindra eru: Atli Freyr Hannesson, f. 1997, Heimir Bergmann Ólafsson, f. 2002, og Gyða Ósk Ólafsdóttir, f. 2003. Stjúpsystur Sindra eru Salbjörg og Sólveig Ólafsdætur, f. 1985. Sindri og Atli eiga einn eldri bróður, Svavar Mána, f. 1993.

Sindri Þór gekk í Öldutúnsskóla og klárað þar sína barnaskólagöngu. Hann fór í Borgarholtsskóla í bifvélavirkjun í tvö ár en skipti yfir í Iðnskólann í Hafnarfirði í rafvirkjun í eitt og hálft ár en kláraði ekki.

Sindri byrjaði 10 ára á námskeiðum

...