„Þegar bílskúrinn er fullur af alls konar ómissandi …“ hljómar í auglýsingu á Youtube sem mér verður æ oftar hugsað til þegar draslið blasir við mér þegar ég loka bílskúrshurðinni á eftir mér að loknum vinnudegi og set standarann niður á hjólinu mínum
Afsakið hlé Ástralska lögreglan fær falleinkunn.
Afsakið hlé Ástralska lögreglan fær falleinkunn.

Lára Fanney Gylfadóttir

„Þegar bílskúrinn er fullur af alls konar ómissandi …“ hljómar í auglýsingu á Youtube sem mér verður æ oftar hugsað til þegar draslið blasir við mér þegar ég loka bílskúrshurðinni á eftir mér að loknum vinnudegi og set standarann niður á hjólinu mínum. Þegar veðurguðinir eru nískir á sumarsól nýta margir tækifærið og ráðast í eilífðarverkefnið að koma skikki á bílskúrinn sem eins og önnur svarthol virðist soga til sín ótrúlegustu hluti sem jafnvel fjölga sér þar af sjálfsdáðum.

Vanti ykkur Don Kíkóta bílskúranna, hlaðvarpsþætti til að halda ykkur við efnið jafnvel svo vikum skiptir, langar mig að benda á þættina The Lady Vanishes um hvarf áströlsku kennslukonunnar Marion Barter árið 1997, óþrjótandi baráttu Sallýjar dóttur hennar við að fá málið rannsakað af

...