LeBron James fór á kostum fyrir Bandaríkin undir lok leiks gegn heimsmeisturum Þýskalands í vináttulandsleik þjóðanna í Lundúnum í gærkvöldi. Hann skoraði síðustu 11 stig Bandaríkjanna í fjögurra stiga sigri, 92:88. Alls skoraði LeBron 20 stig en bæði lið undirbúa sig fyrir Ólympíuleikana í París sem hefjast eftir nokkra daga. Bandaríkin mæta Serbíu í fyrsta leik en Þýskaland mætir Japan í fyrsta leik.

Tveir leikmenn enska knattspyrnuliðsins Tottenham fara ekki með liðinu í æfingaferð til Japan og Suður-Kóreu. Þetta Spánverjarnir Sergio Reguilon og Bryan Gil en þeir hafa lítið komið við sögu hjá Tottenham að undanförnu og eru að vinna í sínum málum við að finna sér ný félög samkvæmt miðlum á Bretlandseyjum.

Handknattleiksmarkvörðurinn Adam Thorstensen, sem ver mark Stjörnunnar, æfir um

...