![Tindastóll Oumoul Sarr leikur með nýliðunum frá Sauðárkróki.](/myndir/gagnasafn/2024/07/23/fcc8b343-6e95-4b87-acd5-7f82b874a294.jpg)
Tindastóll Oumoul Sarr leikur með nýliðunum frá Sauðárkróki.
— Ljósmynd/FIBA.basketball
Oumoul Sarr, körfuknattleikskona frá Senegal með gríðarlega mikla reynslu, er gengin til liðs við Tindastól frá Sauðárkróki, nýliða í úrvalsdeild kvenna á komandi keppnistímabili. Oumoul er fertug, framherji eða miðherji og er 1,90 m á hæð. Hún hefur unnið til silfurverðlauna á Afríkumótinu með Senegal þrisvar á undanförnum árum og leikið með sterkum liðum á Spáni, í Frakklandi, Tyrklandi og nú síðast
...