Í umfjöllun Morgunblaðsins sl. föstudag um vatnsverkefni Aqua Omnis í Ölfusi kemur fram að miðlunartankur sé fyrirhugaður á hafsbotni sem mun ekki vera rétt.

Þá var fyrirsvarsmaður Aqua Omnis rangfeðraður í fréttinni. Hann heitir Þorsteinn Garðarsson, en ekki Guðjónsson eins og ranglega var sagt.

Hlutaðeigandi og lesendur eru beðnir velvirðingar á mistökunum.