Þreyttur Tadej Pogacar ánægður eftir sigurinn um helgina.
Þreyttur Tadej Pogacar ánægður eftir sigurinn um helgina. — AFP/Marco Bertorello

Tadej Pogacar, sem um helgina vann Frakklandshjólreiðarnar, Tour de France, í þriðja sinn á fimm árum, keppir ekki á Ólympíuleikunum í París sem hefjast á föstudaginn. Hann ætlar að sleppa leikunum vegna þreytu og einbeita sér að undirbúningi fyrir heimsmeistaramótið sem fer fram í Sviss í september.

...