70 ára Tvíburasysturnar Edda María Guðbjörnsdóttir og Anna Marie Guðbjörnsdóttir Ganci fagna sjötugsafmæli í dag. Foreldrar þeirra eru Jutta D. Guðbergsson listmálari og Guðbjörn Guðbergsson húsasmíðameistari, bæði látin. Þær ólust upp í Hafnarfirði en fjölskyldan fluttist til Lübeck í Þýskalandi eftir að systurnar luku landsprófi.

Systurnar útskrifuðust frá Höhere Handelsschule 1971 en fóru síðan í Kaufmännische Berufsschule ásamt því að Edda María stundaði listnám.

Edda María sneri aftur til Íslands. Hún er gift Agnari Ásgrímssyni og byggðu þau hús í Flúðaseli 60 en búa núna Mosfellsbæ. Þau eiga saman sjö börn, ellefu barnabörn og eitt barnabarnabarn.

Anna Marie fann ástina í Þýskalandi og fluttist til Sikileyjar með eiginmanni sínum, Emanuele

...