Mennta- og barnamálaráðuneytið hefur framlengt frestinn til að skila inn umsögn í samráðsgáttina þar sem kynnt eru áform um að veita ráðherra heimild til að leggja niður samræmd könnunarpróf til frambúðar. Á nýtt námsmat, matsferill, að leysa könnunarprófin af hólmi.

Umsagnartímabilið var upphaflega frá 5. til 19. júlí og var fresturinn til að skila inn umsögn því aðeins tvær vikur, sem er skemmsti mögulegi frestur sem hægt er að veita samkvæmt reglum samráðsgáttar. Í umsögn tveggja prófessora og dósents var þetta skamma umsagnartímabil gagnrýnt og athygli vakin á að það lenti á sumarleyfistíma lykilstofnana í menntakerfinu. Í gærmorgun kom fram í samráðsgáttinni að samráði væri lokið og að tíminn til umsagnar væri runninn út. Síðar um daginn hafði hann þó verið framlengdur til 6. ágúst.

Þess ber að geta að í kynningartextanum um

...