Hægt er að kæra mann fyrir að keyra yfir á rauðu, henda rusli eða kasta af sér vatni á almannafæri og er þá fátt eitt nefnt. Liggur við að maður hætti að voga sér út. Jæja, sögnin (og nafnorðið) kæra ná yfir þetta

Hægt er að kæra mann fyrir að keyra yfir á rauðu, henda rusli eða kasta af sér vatni á almannafæri og er þá fátt eitt nefnt. Liggur við að maður hætti að voga sér út. Jæja, sögnin (og nafnorðið) kæra ná yfir þetta. Ákæra er annað mál. Lögreglan sendir saksóknara kæruna og hann ákærir mann fyrir glæpinn, hefur sakamál gegn manni.